Ok stelpur, ég er búin að blogga síðan árið 2002 og aldrei lent í
neinu eins flóknu og að skrá mig inn hér... blog.central dæmi
eitthvað... tssh...
En já, þar sem ég er nýbúin að horfast í augu við þá staðreynd að
ég er forfallinn "bloggisti" þá fannst mér við hæfi að ég skrifaði
eitthvað hér inn. Veit reyndar ekki hvað skal skrifa um, en
fyrrverandi íslenskukennarinn minn í MH sagði eitt sinn "magn er
betra en gæði" og það á líklega við um þessa færlsu... Allavega er
magnið meira en gæðin.
Annars er ég persónulega bara fegin að snjórinn hefur ákveðið að
hypja sig til heitari landa

. Jújú, snjór er voða mjúkur og
skemmtilegur og hvítur og hreinn, en hann á sínar dökku
hliðar...

Kynntist þeim óþægilega í síðustu viku þegar mér
tókst að festa mig oftar en einu sinni, og m.a. um miðja nótt og þá
sat ég föst í tæpa 2 tíma

Komst loksins blaut og köld undir sæng
um þrjúleitið, og var ekki í besta skapi þegar ég vaknaði, 6 tímum
seinna til þess að moka Lúðvík (bílinn) út úr skaflinum sem hafði
breytt sig yfir hann í millitíðinni...
Jæja, ég ætla að hætta þessu áður en ég missi mig alveg í
brosköllunum, það er ekkert þannig á blogger svo ég verð að fá
útrás hérna...
Verið hressar
Dísa